Föstudagurinn 16.maí 2014
Í dag töluðum við um allar hugmyndirnar og áætluðum hvað við ætluðum að gera í dag.
Við fundum grænt efni til að geta gert svona green screen í nokrum atriðum í myndini, við töluðum svo við Óla sem hjálpaði okkur að finna stað og fleira fyrir græna skjáinn. Við fundum stað sem var danssalurinn og spurðum hvort við mættum vera þar og við máttum það.
Við tókum upp senu 12, senu 13 og Indiana Jones eða það sem átti að taka upp á grænum skjá.
Agla, Stacy og Kolla voru mest að taka upp en Lára skrifaði senu 13 og skrifaði bloggið fyrir daginn í dag. Við gerðum allveg nokkuð mikið í dag og við erum ánægðar með það sem komið er.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli